Þessi fallega eign seldist strax. Okkur vantar fleiri eignir á þessu svæði í sölu.
Falleg og vel búin íbúð á efstu hæð í Villamartin Garden. Sjávarútsýni frá svölum og þaksvölum.
Íbúðin er með tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými. Þvottahús inn af eldhúsi.
Suður svalir og stórar þaksvalir þar sem hægt er að sóla sig allan daginn.
Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og geymsla.
Íbúðin er eins og ný og búið að setja upp mikið að aukahlutum.
Húsgögn fylgja.
Þrjár sundlaugar í sameign, þar af ein yfirbyggð og upphituð. Leiksvæði fyrir börn.
Glæsileg eign sem vert er að skoða og frábær útleigu eign.
Sjón er sögu ríkari!
Skoða fleiri endursölu eignir hér.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.