Bjartar og vel hannaðar íbúðir í rólegu umhverfi. Staðsettar ofarlega í Villamartin.
Þessi glæsilega þakíbúð er með 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Opið eldhús inní bjarta stofuna.
Stórar, sólríkar svalir með útsýni yfir sundlaugar garðinn. Þaksvalir með fallegu útsýni yfir nánasta umhverfi.
Sameignlegur sundlaugargarður í miðjum kjarnanum ásamt heitum pottum og leiksvæði fyrir börn.
Bílastæði í kjalla fylgir öllum eignum.
Við erum einnig með stærri íbúðir í þessum kjarna.
Traustur verktaki sem hefur starfað í yfir 50 ár á Spáni.
Stutt í alla þjónustu.
Stutt á þrjá vinsælustu golfvellina.
Tilbúnar í júní 2023
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.