Vandaðar og mjög vel staðsettar íbúðir í Punta Prima.
Með neðri hæð fylgir garður og með efri hæð fylgja þaksvalir.
Íbúð á neðri hæð er með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Mjög rúmgóðar og bjartar íbúðir.
Kjarninn er byggður í kringum fallegan sundlaugagarðinn, þar er einnig afmarkað svæði fyrir líkamsrækt og leiksvæði fyrir börn.
Kjarninn er mjög vel staðsettur þar sem stutt er í alla þjónustu og stutt á ströndina.
Þetta er tilvalinn möguleiki fyrir útleigu á íbúðum.
Punta Prima er mjög vinsælt svæði. Mjög miðsvæðis. Öll þjónusta í göngufæri og margir spennandi veitingastaðir.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.