Flott raðhús á góðum stað í Los Alcazares.
Á neðri hæð er eldhús með meðfylgjandi heimilistækjum og opin stofa/alrými. Eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi.
Í stofunni eru stórir gluggar og hurð út á verönd.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stór verönd með úti eldhúsi.
Tilbúnar þaksvalir fylgja húsinu.
Garður með 11,25 fm einkasundlaug. Húsið afhendist með frágengnum garði sem fylgir með í verðinu.
16,5 fm bílskúr.
Tilbúið í september 2023
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.