Falleg hæð með garði í Ciudad Quesada - Vorum að lækka verð frá 260.000 Evrum í 239.000
Eignin er staðsett í Fortuna íbúðarkjarnanum í Ciudad Quesada og er 78m2 að flatarmáli.
Lýsing: tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum og tvö baðherbergi. Úr hjónaherbergi er gengið út í bakgarð sem er með gervigrasi og gróðri. Eldhúsið er opið, tengt stofu og borðstofu.
Útisvæði
Í kjarnanum er falleg sameiginleg sundlaug með útisturtu. Í kringum sundlaugina er gervigras, á svæði sem aðeins er hægt að nota af íbúum samstæðunnar. Íbúðinni fylgir einnig útirými fyrir bílastæði innan lóðar.
Panta upplýsingar um þessa eign hér.
Skoða fleiri eignir hér.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.