Flottar íbúðir við hinn vinsæla golfvöll La Serena Golf.
Þetta eru vandaðar íbúðir í þriggja hæða blokk.
Jarðhæð með garði, fyrsta hæð með svölum og efsta hæð með svölum og þaksvölum með útsýni yfir golfvöllinn.
Jarðhæð og fyrsta hæð eru með tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Efsta hæð er með þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Bílastæði og geymsla fylgir öllum íbúðum.
Spotljós fylgir inni í íbúðum og úti.
Á sameiginlegu útisvæði er sundlaug, pottur og leiksvæði fyrir börn.
Stutt er í miðbæ Los Alcazares þar sem öll þjónusta er til staðar og iðandi mannlíf.
Í oktober 2023 komu í gildi ný lög á Spáni um fasteignasala. Fasteignasalar verða að hafa lokið sérstöku löggildingarnámi á Spáni til að geta selt fasteignir. Annars eru viðskiptin ótryggð með öllu og ólögleg og geta varðað sektum.
Sumareignir hafa brugðist við og fengið þessi réttindi og nú getur þú keypt og selt fasteign í gegnum okkur án áhættu.